|
Hammondhátíð Djúpavogs hefur það að meginhlutverki að heiðra og
kynna Hammondorgelið. Er það gert með því að fá tónlistarmenn, allt
frá heimamönnum til landsþekktra, til að leika listir sínar og er
Hammondorgelið rauði þráðurinn í gegnum alla dagskrána.
Hátíðin var fyrst haldin árið 2006 og hefur jafnt og þétt vaxið
fiskur um hrygg síðan. Hún er nú orðin ein af elstu tónlistarhátíðum
landsins.
Hammondhátíð er ávallt sett á sumardaginn fyrsta sem ber
alltaf upp á fimmtudegi, en það hefur jafnan verið nefnt heimakvöld
á Hammondhátíð. Það hefur þó þróast á síðustu árum í austfirskt
kvöld, þar sem leitast er eftir því að finna tónlistarmenn og
hljómsveitir á Austurlandi til að spila í bland við heimamenn.
Tónleikar eru svo á föstudags- og laugardagskvöldinu en þar er reynt
að fá stærri og þekktari nöfn til að leika. Hátíðinni er svo slitið
með tónleikum í Djúpavogskirkju, en jafnan er þar einsöngvari ásamt
hammondleikara.
Í gegnum árin hafa í kringum Hammondhelgina sprottið upp fjölmargir
aðrir viðburðir. Handverksfólk og hönnuðir hafa verið mjög áberandi
með sínar afurðir.
Listinn yfir þá tónlistarmenn og hljómsveitir sem komið hafa fram á
hátíðinni í gegnum tíðina er orðinn langur og glæsilegur og hafa
hljómsveitir og listamenn á borð við Hjálma, Sigríði Thorlacius, Baggalút, Dúndurfréttir,
Jónas Sig, 200.000 naglbíta, Sölku Sól, Röggu Gísla Emmsjé Gauta, Todmobile, Stuðmenn, Sólstafi, Mammút,
Moses Hightower, Bubba og Dimmu, Lay Low, Mugison og Nýdönsk heiðrað okkur með nærveru sinni.
Allt í allt hafa um 250 tónlistarmenn stigið á stokk á Hammondhátíð.
Þá hafa ófáir austfirskir tónlistarmenn komið fram auk þess sem
þáttur heimamanna hefur verið rómaður en um 60 tónlistarmenn og
konur frá Djúpavogi hafa tekið þátt frá upphafi.
Hammondhátíð er orðinn langstærsti menningarviðburður Djúpavogs. Það þarf
því ekki að hafa mörg orð um hve mikils virði þessi hátíð er t.a.m.
fyrir ferðaþjónustuaðila, verslun, handverksfólk og alla þá sem
bjóða einhverskonar þjónustu, enda fer viðburðum í tengslum við
þessa hátíð fjölgandi ár frá ári. Ekki síst er hún mikilvæg fyrir
okkur íbúana; í þessu samheldna samfélagi bjóðum við landsmönnum
öllum upp á tónlistarhátíð á heimsmælikvarða, hátíð sem er sú eina
sinnar tegundar í Evrópu.
Stjórn Hammondhátíðar skipa:
Ólafur Björnsson
Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir
Kristján Ingimarsson
Guðjón Viðarsson
Þórir Stefánsson
Greta Mjöll Samúelsdóttir
William Óðinn Lefever
|
|