Fimmtudagurinn
- Fyrsti í Hammond 2012 -
Í fornum sögum má finna lýsingar á langvarandi
samkundum í tengslum við brúðkaup, einkum ef annað
hvort brúðguminn eða brúðurin (ellegar bæði) „áttu
nokkuð undir sér“. Brúðhjónin, sem giftu sig í gær,
Lilja Dögg Björgvinsdóttir og Sigurjón (bóndi)
Stefánsson eru í hópi óðalsbænda í Álftafirði og það
er lágmark að þau fái eins og aðrir fjegurra daga
hátíð, sem tengist beint brúðkaupi þeirra. Eru þeim
hér með færðar innilegar árnaðaróskir vegna hinnar
síðbúnu staðfestingar á þeirra nokkuð langvinna
sambandi. Einnig er, svo sem vert er, þakkað fyrir
fallega athöfn í Djúpavogskirkju í gær og góðgerðir
á Helgafelli í kjölfarið. Þeim og að sjálfsögðu
öðrum tíðum hljómleikagestum og tónlistarunnendum er
að sjálfsögðu óskað til hamingju með hátíðina okkar
allra, Hammondhátíð Djúpavogs, sem ýtti úr vör í
gærkvöldi á Hótel Framtíð.
Salurinn var aðlaðandi og fyrst menn þurfa að sitja
uppi með reykinn, sem orðinn er aðalsmerki
tónlistarflutnings af því tagi sem í vændum var, má
segja að hann, sem hluti af ljósaumgjörðinni allri
hafi verið eins og bezt verður á kosið. Hið sama
gildir að sjálfsögðu um hljóðstjórnina, sem var á
„fullu blasti“, en gott sánd verður aldrei ofmetið
við tækifæri sem þessi. Sá þáttur var í höndum pilta
frá Hljóðkerfaleigu Austurlands (Guðjóns Birgis
Jóhannssonar og Þorvaldar Einarssonar) eins og í
fyrra, auk þess sem heimamaðurinn Magnús
Kristjánsson lagði hönd á plóg. Sannarlega fagmenn
þar á ferð.
Hr. Hammond, Svavar Sigurðsson, steig á svið rétt
fyrir kl. 21, ásamt þeim væna pilti, Tómasi
Jónssyni. Tómas kom hér einnig í fyrra og má um hann
segja að hann eldist eins og eðalvín. Saman fluttu
þeir „gjörning“ úr smiðju J.S. Bach, sem er alveg
hættur að snúa sér við í gröfinni, þótt frjálslega
sé farið með ópusa sem hann er réttilega skrifaður
fyrir. Svavar var glerfínn allt kvöldið í Armani
frakka og hans var ríkið mátturinn og dýrðin að efna
í liðið, sem mætti til að flytja prógramm sitt á
fyrsta kvöld í Hammond 2012 í samræmi við
auglýsingar þar um. Um Armani flík Svavars gildir
hið fornkveðna, að ekki er jakki frakki, nema síður
sé.
Að loknum framangreindum inngangi voru flutt
minningarorð um Jón Ægi Ingimundarson, sem var í
hópi ötulustu stuðningsmanna hátíðarinnar frá
upphafi, en hann féll frá í hörmulegu vinnuslysi
s.l. haust. Stóðu allir viðstaddir upp, þegar
minningarorðin höfðu verið flutt og sýndu hug sinn
til þessa ljúflings og ötula tónlistarmanns í þögn
og þökk fyrir framlag hans til tónlistarmála á
Djúpavogi.
Síðan steig Svavar aftur á svið, en taka ber fram að
sú hefð hefur skapast að kalla upphafskvöld
Hammondhátíðanna „kvöld heimamanna“. Má segja að það
hafi einnig verið í gær, þótt í sumum tilfellum
tengist heimamennskustimpillinn fyrri heimsóknum
nokkurra flytjendanna hingað, svo tíðum, að
ósanngjarnt væri að kalla þá aðkomumenn. Alla vega
var hreinræktaður heimamaður á ferð í fyrsta
atriðinu, en það var Djúpavogsmærin Íris
Birgisdóttir, sem flutti nokkur lög við undirleik
Tómasar þess, sem áður er nefndur. Í rödd Írisar er
einhver silfurtær hljómur, sem ætíð hefur verkað vel
á annálsritara frá því að hann naut söngs hennar
fyrst. Nú strax að loknu einu ári í söngnámi í
Tónlistarskóla F.Í.H. heldur hljómurinn sér
prýðilega, en auk þess er greinilega ljóst að námið
er að skila sér vel og verður áhugavert að fylgjast
með þessari söngdívu í framtíðinni. Íris er svo sem
ekki óvön að koma fram, en með meiri dirfsku og
öflugri líkamstjáningu yrði enn áhugaverðara að
berja hana augum á sviði og hlýða á ómfagran
sönginn, sem vissulega skemmir ekki að sé leiddur af
jafn færum undirleikara og Tómas Jónsson er. Hann
stundar einnig nám í Tónlistarskóla F.Í.H. og fékk
verðlaun s.l. vetur sem afburðanemandi. Það kemur
okkur Hammondhátíðarfólki ekki á óvart, eftir að
hafa heyrt og séð piltinn hér með „Landsliðinu“
vorið 2011.
Þá birtust á sviði hálfgerðir „laumufarþegar“
kvöldsins, en þeirra hafði hvergi verið getið í
upphaflegum auglýsingum. Var það norðfirzka
hljómsveitin Coney Island Babies (tilvísun í tónlist
Lou Reed). Hljómsveitina skipa; Guðmundur
Höskuldsson, gítar, Geir Sigurpáll Hlöðversson,
gítar og söngur, Hafsteinn Már Þórðarson, bassi og
Jón Knútur Ásmundsson, trommur. Er skemmst frá að
segja að þetta aukanúmer kvöldsins átti fullan rétt
á sér og „vel það“ (eins og maðurinn sagði). Bandið
er hið „þéttasta“ og verður virkilega áhugavert að
kynna sér nýjan geisladisk, Morning to Kill, sem er
að koma út og verða útgáfutónleikar á næstunni. M.a.
fluttu þeir lagið Polly (eftir þá félaga) og virtist
þar eyrnakonfekt á ferð, sem hefur alla burði til að
ná miklum vinsældum. Það verður gaman að fylgjast
með framhaldinu hjá þessum piltum, sem eru kúl og
miklu fremur „Men“ heldur en „Monsters“.
Að þessu búnu fór „aðalnúmer kvöldsins“ að setja sig
í gírinn. Var það Fjórðungslandslið Austurlands
undir stjórn hins geðþekka bassaleikara, Þorleifs
Guðjónssonar, sem flutti sig um set úr
borgarglaumnum fyrir ríflega áratug og settist að í
Hamraborg í Berufirði. Þótt fluttur sé aftur í
dýrðina syðra, má fyllilega flokka hann sem
heimamann og það mætti reyndar gera með fleiri af
meðreiðarsveinunum, m.a. hinn fingrafima gítarista
Jón Hilmar Kárason, sem söng tvö lög, en það var ný
upplifun (og ánægjuleg fyrir marga viðstadda). Ekki
síður fellur undir flokk „heimamanna“ Garðar
Harðarson, hinn lipri gítarleikari og afburða
blússöngvari, sem oft hefur verið mærður við
umfjöllun fyrri ára, þegar hann hefur stigið á svið
hér. Svavar tók Hammondið til kostanna í upphafi, en
varð að lúta í lægra haldi fyrir Tómasi í nokkurs
konar orrustu um Gasa svæðið í kringum þetta
virðulega hljóðfæri. Síðast en ekki sízt skal nefna
Jón Knút Ásmundsson, trommuleikara, sem svo
sannarlega stóð fyrir sínu. Þrátt fyrir að hann hafi
ekki oft spilað með þessum hópi í heild gaf hann
framangreindum snillingum ekkert eftir og var
pottþéttur í bítinu. Lét hann einnig vel að stjórn í
þeim tilfellum, þegar hljómsveitarstjórinn gaf honum
meldingar um atriði í útsetningum, sem bandið í
heild hafði líklega ekki átt þess kost að æfa í
þaula. Tekið skal þó skýrt fram að alls ekki var að
sjá að æfingaleysi væri mönnum fjötur um fót, heldur
þvert á móti. Það er nú kosturinn við afburða
tónlistarmenn að einn slíkur, sem kemur nýr inn
tímabundið í þétt band, virðist geta fallið eins og
flís við rass inn í hópinn í heild. Það var svo
sannarlega reyndin þetta kvöldið. Annálsritari
minnist þess ekki að Þorleifur hafi staðið fyrir
jafn „fönk skotnu“ prógrammi eins og þarna var boðið
upp á en hann er og hefur reyndar ekki verið við
eina fjölina felldur í tónlistinni, drengurinn sá.
Dæmi um það var þegar hann kallaði Silviu Hromadko
upp á sviðið til að láta hana taka einn reggí
slagara, til að rifja upp gamla takta, þegar þau
tvö, ásamt Svavari komu fram undir nafninu SVASIL
(Svavar og Silvia).
Ánægjulegu kvöldi lauk skömmu fyrir miðnætti og fóru
gestir, sem voru nokkuð innan við 100 mjög sáttir
til síns heima og hlakka til kvöldsins í kvöld og
næstu kvölda. Vísum við til auglýsingar þar um í því
sambandi.
Myndir frá kvöldinu má sjá með því að
smella hér.
Myndir: Andrés Skúlason
Texti: bhg
Föstudagurinn
- Annar í Hammond 2012 -
Hið hefðbundna korter
tvöfaldaðist, meðan menn voru að gíra sig upp og
efna til veizlufanga, en svo byrjaði kvöld nr.
2. Á sviðið steig úrvalslið hins sextuga Björgvins
Gíslasonar. Já, það var svo sannarlega úrvalslið,
sem keppti saman og innbyrðis á toppnum, þótt það
væri í tveim deildum, aldurslega séð, eins Bjöggi
Gísla orðaði það; trommarinn Geiri Óskars,
bassaleikarinn Halli Þorsteins og gítarleikarinn
Bjöggi (og gott ef ekki einn fermingarbróðir enn). Í
yngri deildinni voru Johnny B Good = Jón
óvenjugóði á Hammondorgelinu og sjálfur Gummi Pé með
hinn gítarinn. Sönginn annaðist úr þeirri deild en
fyrir hópinn í heild Björgvin Ploder, sem sniglaðist
upp á sviðið eftir tvö verk, hvar af það fyrra reis
úr mikilli dulúð, án þess að flestir í salnum tæku
eftir að þar væri verið að ýta úr vör, yfir í það
verða undir, yfir og allt um kring, jafnvel með
örlitlum Pink Floyd fílingi í stutta stund, svona
ljóð án orða, í bragarhætti sonnettu.
Annálsritara minnir að Bjöggi hafi kynnt næsta verk
sem „Ambrosia“, og þá var fönkið orðið jazz
skotnara. Þá strax og ekki síður þegar Ploderinn var
búinn að kyrja sitt fyrsta lag, fengu viðstaddir vel
á tilfinninguna að þeir væru viðstaddir atburð, sem
svo sannarlega væri þess virði að taka þátt í,
burtséð frá því hvort einhverjir þeirra kæmust til
tunglsins síðar meir.
Já, það voru svo sannarlega merkilegir tónleikar á
Hótel Framtíð þetta kvöld, sem hófust í þann mund,
sem Fljótsdalshérað var að leggja Garðabæ í
Útsvarinu. Ekki endilega mesta stuðið, þegar saga
Hammond hátíðarinnar er skoðuð í heild, en þó var
salurinn glettilega vel með á nótunum. Þarna var
margt vissulega „öðru vísi“, en oft áður. Þótt
„fönk“ sé líklega ekki tónlistin til að drekka sig
til með fyrir Geirmundarballið á Skjöldólfsstöðum
(séu menn að fara þangað), er ferlega flott að sjá
svona afburða spilara fremja það á sviði, einkum
þegar frábær ljósabúnaður er nýttur af kunnáttu. En
það var ekki bara systirin Fönk, sem mætt var þarna
geislandi af gleði, heldur kom bróðir hennar Fúsi
Jón einnig mjög við sögu, og jafnvel Reggí frænka
þeirra. Vissulega væri vert að gera betur skil
einstökum verkum, en þeir félagar hristu þetta allt
fram úr ermum eins og að skeina sig með vinstri.
Geiri lét hendur standa fram úr á stuttermabolnum,
en hvíldi þó kjuðana í einu verkinu, meðan
trommusettið hans Óla okkar trommara var að kólna
niður. Oftar hélt hann þeim samt í sterkum
greipum sínum og kom sínu af alkunnri festu og
öryggi til skila, enda ekki amalegur meðreiðarsveinn
í þeim hluta bandsins, sem gjarnan er kallaður
„hrynsveitin“. Þá er átt við bassaleikarann Halla
Þorsteins, sem satt að segja var afburðaþéttur og er
þá vægt til orða tekið. Og hvað er hægt að segja um
þátt tveggja stórklassa gítarleikara, þegar Gummi Pé
er á stundum bara „co pilot“ á sinn afslappaða og
agaða hátt. Um færni Jóns óvenjugóða á Hammondið
þarf ekki að hafa mörg orð og hann þarf vissulega
ekki að sanna sig, en gerir það samt. Hin sérstaka
og kraftmikla rödd Plodersins varð svo sannarlega
heldur ekki til að skemma samkunduna. Og ekki
má gleyma því að hljómsveitarstjórinn hefur
vissulega samið mörg afburða tónverk, sem reyndar
kalla á meiri kunnáttu en grunnþekkingu í
vinnukonugripum í flutningi. Þeim voru svo
sannarlega gerð góð skil þarna og er ástæða til að
gefa tónskáldinu „þömbs öpp“, því titilinn tónskáld
ber það (hann) með sóma.
Kynningar þeirra félaga voru yfirleitt stuttar og
með yfirbragð léttleika eftir örlítið hik í byrjun,
en síðan varð þetta „kammó“ og skemmtilegt, þvert
ofan í það sem Bjöggi sagði í byrjun að prógrammið
væri yfirleitt leiðinlegt, en tæki fljótt af. Allir
hljóðfæraleikararnir nutu sín vel og komu sínum og
annarra manna vikivökum til skila. Þeir fóru fyrst
af alvöru yfir í rokkið eftir hlé, en aldrei var
langt í „glettur og gigg“ af beztu sort. Og svo var
þetta allt í einu búið og uppklappslagið tekið áður
en uppklappið kom af því að salurinn á Hótel Framtíð
er svo langur í annan endann að Bjöggi nennti ekki
að ganga fram og til baka, enda á leiðinni í
Hveragerði að eigin sögn.
Bandið hans Bjögga komst samt ekki upp með að skila
ekki uppklappslagi og var það úr smiðju The Band.
Lagið var The Weight (Take a load off Annie / Fanny),
sem leggja mætti út „Fargið“ (Léttu byrð‘ af
Láru / Báru). Þá settist Sniglabandstrommarinn við
settið og söng þetta ágæta lag til minningar um
trommuleikara The Band, Levon Helm, sem nú er allur.
Og etv. segir það allt sem segja þarf, að þeir
félagar skyldu velja að kveðja með verki The Band,
þó að það hafi nú líklega verið ómeðvitað hjá þeim,
en öllu fremur gefið annálsritara tækifæri til að
koma með „pönslænið“, sem er þetta: Sé litið til
sögu Hammondhátíðar Djúpavogs frá upphafi skynjaði
hann það strax á sjálfum tónleikunum og í kjölfar
stuttra hrifningarstuna vina sinna, sem meira
skynbragð hafa á tónlist en hann, að með framgöngu
sinni urðu þeir „Ðe Band“, þegar afrakstur
hátíðarinnar öll árin sex og hálfu meir er skoðaður
í samhengi.
Myndir má sjá hér
Myndir: AS
Texti: bhg
Laugardagurinn
- Þriðji í Hammond 2012 -
Og svo rann 3ja kvöldið upp eftir
afslappaða bið í hinn bráðum hefðbundna hálftíma m/v
auglýsta dagskrá. Í boði voru Megas og Senuþjófarnir
og var greinilegt að margir vildu berja augum Megas,
átrúnaðargoð sitt frá fornu fari og jafnvel til
dagsins í dag, þegar sumir fíla hann enn betur eftir
að Senuþjófarnir komu til leiks. Etv. voru þarna
einhverjir af nágrönnum hans til forna, meðan hann
bjó í skamman tíma hér á Djúpavogi. Alla vega var
þetta bezta kvöldið mætingarlega séð.
Megas tók flugið seint austur og einhvern veginn
fannst annálsritara hann taka flugið seint, en Megas
er jú Megas og þarf ekki að þenja sig á fullu (me-)gasi
til að koma sínu til skila. Senuþjófarnir eru fínir
spilarar, en samt fannst manni bera á ákveðnu
óöryggi á köflum og jafnvel æfingaleysi. Afleiðingar
slíks voru þó í lágmarki vegna röggsemi Guðmundar
Péturssonar, sem er „Victor Silvester“ þessarar
grúppu, svona út í frá, þótt líklega hafi hann ekki
komið henni á laggirnar. Hjómsveitin er öllu fremur
hluti bæjarútgerðar þeirrar, sem kennd er við annars
konar aflabrögð en hinna „grand(a)vöru
samherjamanna, hverrar systurskip eru Hjálmar og
„Laggabútur“. Annálsritari hafði velt því fyrir sér
fyrir tónleikana, hvaða skipi útgerðarinnar;
Senuþjófunum, Hjálmum, eða Baggalútunum yrði lagt,
kæmi hið nýja kvótafrumvarp of illa við þessa
útgerð. Niðurstaðan hafði fyrirfram orðið sú að mest
líkindi væru til þess að hið fyrst nefnda „prósjektið“
yrði hengt á bryggjupollana og sú skoðun mín
breyttist ekki framan af tónleikunum í gær. En þegar
menn settu í botn undir lokin og hristu m.a. fram
skemmtilegar útsetningar eins og á „Spáðu í mig“
varð ég ekki eins sannfærður.
Já, vel á minnst; Ég samt ekki viss um að
áhrif framangreindrar kvótaskerðingar myndi hafa
slæm áhrif á Megas, því hann gæti í kjölfar slíkra
breytinga orðið sinn eigin skipherra á nýjan leik og
farið yfir í smábátakerfi, líklega þó með snjallan
akkústikk gítarleikara með sér og þannig horfið til
fortíðar eins og við mörg hver þekkjum hann bezt.
Megas var sjálfum sér líkur og passlega mikið út á
þekju, enda vantar bara einn metra í að hátt sé til
lofts í salnum. Hann kom sínu til skila og allir
vita að hann hefur samið og er að semja góð lög.
Textar hans eru hafnir yfir alla gagnrýni, en menn
þurfa að hafa þá á hreinu, þegar mætt er á slíka
tónleika þar sem „telepromterinn“ (textavélin) snýr
alla jafna öfugt frá áheyrendum séð.
Gaman var að fylgjast með tónleikagestum, sem voru
ríflega 150, þegar allt var talið. Ekki síst reyndi
á hálsliði margra allt frá banakringlunni niður til
liðar nr. 7, þegar menn sveifluðu höfðinu fram og
aftur í viðurkenningarskyni og slógu þannig taktinn
á sinn hátt. Einstaka maður hellti jafnvel úr
eyrunum af ánægju. Salurinn var sem sagt vel með á
nótunum og brást vel við því sem fram var reitt og
ljóst að stuðið þarna var meira en á hinum kvöldunum
og það því hið bezta hingað til í slíku tilliti. Það
segir þó ekkert til um aðra þætti og er bent á
umfjöllun um kvöld nr. eitt og tvö til frekari
samanburðar.
Megasi og Senuþjófunum tókst alla vega að halda
senunni til loka, þótt atlaga væri að þeim gerð um
hríð.
Hafi þeir hina beztu þökk fyrir, sem og tæknifólkið,
er sá um að koma afurðum þeirra til skila og magna
þær upp m.a. með brellum ljósabúnaðarins á staðnum.
Myndir má sjá með því að
smella hér.
Texti: BHG
Myndir: AS
Sunnudagurinn
- Fórði í Hammond 2012 -
Og þá
er nú Hammondhátíð Djúpavogs árið 2012 lokið í þetta
sinn.
Fjórði starfsdagur hátíðarinnar fór fram í
Djúpavogskirkju og var athöfnin þar vissulega heilög
í samræmi við boðskap kristinna fræða um að menn
skuli halda hvíldardaginn heilagan. Annálsritari er
verulega efins um að fólk hafi gengið glaðara og
þakklátara í hjarta úr kirkju sinni þennan dag, en
þeir, sem komu á tónleika Egils Ólafssonar og
Jónasar Þóris, sem þarna fóru fram. Og víst er um
það að betri predikun hefur tæpast verið haldin í
nokkru guðshúsi þennan daginn en sú, sem Egill
flutti smám saman með föðurlegum tón og í miklum
innileik, eftir fyrstu verkin á efnisskránni höfðu
litið dagsins ljós. Þar kom Jónas í byrjun við sögu
með verkum úr smiðju Bach og Grieg. Að því búnu tók
við „Oh what a morning“ (söngur úr guðspjöllunum) og
því næst slagari úr Stuðmanna katalóknum, „Energí og
trú“.
Og
það átti svo sannarlega vel við að hljóðfærið,
Hammond orgelið, sem nýtt hefur verið við
trúarsamkomur af ýmsu tagi úti um allan heim, einkum
hinn vestræna frá okkur séð, væri í aðalhlutverki
hjá hinum fingrafima og ljúfa undirleikara, Jónasi
Þóri, sem reyndar tók flygilinn til kostanna í alla
vega 2 lögum. Það var ekki amalegt að hlusta á Egil
flytja við hugljúfan undirleik sálm, eigið lag og
texta, sem hann kallaði veraldlegan, af því að
hvergi í honum væri minnst á guð, en samt fjallað um
hið góða í manninum. Hann er númer 9; „Þó himnarnir
hrynji...“ úr 18 laga safni veraldlegra sálma
eftir listamanninn.
Egill
tileinkaði mörg verk á efnisskránni konum, sem hann
kvað, án mótmæla úr kirkjubekkjum, vera fallegri
hluta mannkyns. Flutti hann síðan „Summertime“ eftir
þá Gerswin bræður og í framhaldi af því „Night & Day“
eftir Cole Porter. Samhliða því upplýsti hann
annálsritara og líklega flesta kirkjugesti um að hin
íslenzka myndlistarkona, Nína Sæmundsson, hafi verið
einn helzti tónlistargagnrýnandi Porter og jafnvel
haft líf verka hans í höndum sér. Hann mun hafa
leitað álits hennar á ýmsum verkum sínum og annað
hvort gaf hún þeim gæðastimpil og þar með líf, eða
ráðlagði tónskáldinu að leggja þau snarlega til
hliðar. Þetta var sannarlega áhugavert og kemur
þarna í ljóst, eins og Egill ályktaði, að rætur
Íslendingsins liggja víða.
Í
predikunum sínum (kynningum á milli verka) lagði
söngvarinn m.a. út frá því að ekkert væri sjálfgefið
í lífinu, eins og mönnum hætti til að halda. Hann
minntist á stórhug og framsýni Svavars Sigurðssonar,
upphafsmanns hátíðarinnar og þeirra, sem sterkast
hafa staðið við bakið á honum við að halda úti
menningu með þeim stimpli, sem hátíðin hefði fengið
á sig. Vissulega væri það alþekkt að menn ynnu að
því að halda uppi menningu, m.a. úti um hinar
dreifðu byggðir, þar sem að maður væri manns gaman.
Hins vegar væri flóknara að búa til nýja menningu af
því tagi sem hér hefði verið gert. Hann vék orðum
sínum að hinni eðlu íþrótt, borðtennis (Ping Pong)
og útskýrði, að ef bara pingið væri til staðar,
vantaði öll samskipti í tjáningu manna í milli. Þeir
félagar sýndu síðan á táknrænan hátt mikilvægi
undirleikarans og söngvarans fyrir hvorn annan og
hvernig Ping Pongið virkar í tónlistarflutningi.
Á
einum stað í efnisskránni lék Jónas Þórir af fingrum
fram „Vorið er komið og grundirnar gróa“ í djassaðri
útsetningu. Á meðan var Egill að byrja að hita upp
forláta trommu (sjá mynd), sem hann kvað eiga
árþúsunda gamlan uppruna og hefði í raun og veru
verið GSM sími þeirra tíma og langt fram á vorar
aldir. Reyndar fullkomnara tæki en öll slík í
nútímanum, því að með þessum GSM síma hefðu menn náð
að vera í sambandi við framliðna. Reyndi hann síðan
„að ná í“ við Jón Arason, sem dó um miðja 16. öld og
var eitt helzta skáld þeirra tíma. Við eigin
undirleik á trommuna flutti hann því næst
veraldlegan sálm Jóns, sem byrjar á þessum orðum;
„Hnigna tekr heimsins magn“.
Að
því búnu fengu viðstaddir að heyra útgáfu Egils á
trúarjátningunni og var sú bæði virðuleg og vel
flutt, reyndar í töluðu máli en ekki sungnu. Svo kom
sungið atriði „It ain´t necessarily so“, og í
framhaldi af því upplýsingar um að Egill hefði
dvalið sumarlangt á Djúpavogi fyrir 42 árum við
mælingar á stæðum fyrir raflínur. Dvölina taldi hann
hugsanlega hafa verið tímasóun, þar sem að hann
virtist hafa vissar efasemdir um að sjónmengunin frá
raflínunum, sem hann óbeint er ábyrgur fyrir, væri
réttlætanleg. Að öðru leyti hugsaði hann greinilega
hlýtt til staðarins.
Lokalagið fyrir uppklapp var eigin texti Egils á
þekktum slagara Ninu Simon, „My Baby Just Cares For
me“.
Að
lokum tóku þeir félagar, þó með Egil í verulegu
aðalhlutverki, lagið, en þó ekki síður textann
„Ofboðslega frægur“ og var hrein unun að hlýða á
flutninginn og sjá hina líflegu notkun Egils á því
sem kallað er líkamstjáning. Þar fara fáir í fötin
hans, og reyndar er útgeislun hans gífurleg á öllum
sviðum við tækifæri sem þetta. Stóðu viðstaddir
tónleikagestir upp fyrir þeim félögum og klöppuðu
þeim lof í lófa svo sem vera bar.
Lokaorð.
Að loknum framangreindum tónleikum flutti Hlíf B.
Herbjörnsdóttir, einn af máttarstólpum hátíðarinnar
öll árin, sem hún hefur verið haldin (2006 – 2012),
listamönnunum þakkarorð og lagði út frá orðum Egils
Ólafssonar um að ekki væri allt sjálfgefið í lífinu.
Hún tilkynnti um handverkssýningu, sem eldri
borgarar á Djúpavogi stæðu fyrir síðar í dag. Bað
hún síðan höfuðpaur Hammondhátíðar Djúpavogs frá
upphafi, Svavar Sigurðsson að koma upp og þiggja
verðskuldað klapp frá viðstöddum. Þriðji helzti
máttarstólpi hátíðarinnar frá upphafi hefur verið
Þórir Stefánsson á Hótel Framtíð. Framlag þeirra
þriggja verður seint fullþakkað. Aðrir með þeim í
stjórn, ýmist allan tímann eða stóran hluta hans
hafa verið Hrönn Jónsdóttir og Kristján Ingimarsson
og gildir hið sama um þau. Annálsritari hefur verið
viðloðandi stjórnunarstörf, en aðallega séð um
myndatökur og verið nokkuð virkur í misgáfulegum
skrifum um hátíðina, sem – sé alla vega hinu
torskilda efni sleppt – hafa sögulegt gildi, ekki
sízt myndirnar, sem hann og aðrir, einkum Andrés
Skúlason hafa tekið.
Ljóst er að breytingar eru framundan hvað varðar
stjórn og undirbúning Hammond hátíðar Djúpavogs. Öll
framangreind hafa ákveðið að draga sig í hlé úr
framvarðarsveitinni og eru fyrir því ýmsar ástæður,
m.a. brottflutningur Svavars frá landinu. Hlíf og
hennar maki eru að flytja á Stöðvarfjörð í haust og
þeim og öðrum finnst rétt að hleypa nýju blóði í
æðar þessa mikilvæga slagverks, en allir eru
tilbúnir að aðstoða við atriði, sem kunna þarf skil
á og þurfa að geta gengið upp svo vel sé til
framtíðar litið. Megi þeim, er við taka, m.a. öðlast
að tryggja viðvarandi trú þeirra sem úthluta styrkum
til menningarmála til hátíðar af þessu tagi, að ekki
sé talað um þá fjölmörgu, sem styrkt hafa hana
undanfarin ár. Það er ekki sjálfgefið að reka svona
hátíð í lengd og bráð „réttu megin við núllið og vel
það“, en það hefur aldrei verið tap á henni þessi
ár, þótt fyrsta árið þyrfti reyndar til að koma
fjármagn í formi styrkjar frá nokkrum velunnurum
hennar svo endar næðu saman. Þessi árangur hefur
náðst m.a. á grundvelli eftirtalinna staðreynda:
a) Svavar Sigurðsson
þekkir marga afburða tónlistarmenn eða hefur haft
aðgang að þeim með vinskap í gegnum Halldór Bragason
(verið einn af Vinum Dóra). Ljóst er að menn hafa
náð stórgóðum tónlistarmönnum hingað í gegnum þessi
sambönd og nánast alltaf gegn mjög sanngjörnum
greiðslum. Svo er komið að það er mörgum háklassa
tónlistarmönnum keppikefli að „fá“ að spila á
Hammondhátíð Djúpavogs. Svavar á því mikinn heiður
af því að hrinda úr vör og laða að sér góða
samstarfsmenn.
b)
Eigendur Hótels Framtíðar hafa alla tíð styrkt
hátíðina með gistingu og fæði fyrir alla
listamennina, án nokkurrar greiðslu. Í því sambandi
er vert að þakka þeim Þóri og Guðrúnu Önnu fyrir
mikinn metnað og var annálsritari mjög stoltur af
því að sjá hve vel var staðið að framreiðslu og
öllum aðbúnaði nú, ekki síður en undanfarin ár.
c)
Hátíðin var svo heppin að fá strax að fjármálunum
Hlíf B. Herbjörnsdóttur, sem að öðrum ólöstuðum
hefur haldið afburða vel á þeim þætti og nýtur
mikillar virðingar hjá flytjendum og öðrum, sem að
verkefninu hafa komið. Hefur allt staðið sem stafur
á bók í þeim efnum og hátíðin þar með fengið það
orðspor að ekki þurfi að bíða eftir greiðslum í
óvissu. Þessi árangur hefur náðst á þann hátt að
nánast öll vinna við undirbúning og framkvæmd
hátíðarinnar hefur verið í sjálfboðavinnu. Fórnfýsi
og sjálfboðavinna hefur því raun verið „master
lykillinn“ að velgengninni.
d)
Jón Ægir Ingimundarson, sem féll frá s.l. haust, og
félagar hans í hljómsveitinni hér á staðnum hafa
stutt hátíðina tryggilega, m.a. með því að lána
hljóðfæri og spara þar með heil mikinn
flutningskostnað. Auk þess annaðist Jón Ægir
tæknistjórn fyrstu árin. Hans þáttar í verkefninu
voru gerð ágæt skil í minningarorðum, sem flutt voru
í upphafi hátíðarinnar nú.
e)
Eftir því sem hátíðinni hefur vaxið fiskur um hrygg
fjárhagslega hefur verið leitað dýrari og þar með
flottari lausna til að tryggja sem beztan
hljómflutning og lýsingu. Bæði nú og fyrr hafa verið
þar sannir fagmenn á ferð og er þeirra bæði getið
við umfjöllun um 1. kvöldið nú og eins í umfjöllun
vegna einstakra ára á sérstakri heimasíðu
hátíðarinnar.
f)
Djúpavogshreppur studdi strax í upphafi vel við
hátíðina og gerir enn. Þáttur Bryndísar Reynisdóttur
og Ólafs Björnssonar er þó sýnu mestur í því
sambandi.
g)
Fyrirtæki á staðnum og reyndar víðar, hafa stutt
hátíðina á ýmsan hátt, ýmist með því að veita
umtalsverða afslætti eða með beinum fjárframlögum.
h)
Og síðast, en ekki sízt hafið þið, sem þetta kunnið
að lesa, alla vega mörg ykkar, að sjálfsögðu lagt
ykkar af mörkum með því að mæta og veita þannig
hátíðinni sjálfri og flytjendum hverju sinni byr
undir báða vængi.
En fyrir alla, sem þetta kunna að lesa og hafa
metnað fyrir hönd hátíðarinnar, set ég hér í lokin
brýningu frá vini mínum, Stefáni Bragasyni á
Egilsstöðum, sem ég bað um að meitla í 4 línur það
sem að ég held að við getum öll verið sammála um að
sé samasemmerkið á milli byggðarlagsins og
tónlistarhátíðarinnar. Djúpivogur hefur vissulega
fóstrað hana og nafn byggðarlagsins kemur að sama
skapi oftar upp í huga fjölmargra góðra gesta okkar
sem áhugaverður menningarstaður í tilverunni.
Stefán, eins og margir aðrir, hefur tekið ástfóstri
við staðinn og verið tíður gestur á undanförnum
hátíðum og mætti að sjálfsögðu einnig á þá sjöundu.
Hann orðar þetta svona:
Enn í hlustum ómurinn
er frá brimsins sogi.
Hammond orgelhljómurinn
hæfir Djúpavogi.
Megi
orðspor Hammondhátíðar Djúpavogs halda áfram að
aukast.
Myndir má sjá með því að
smella hér.
Texti: BHG
Myndir: AS
|