FORSÍÐA | UM HÁTÍÐINA | UPPLÝSINGAR | MIÐASALA | 2023 | 2020 | 2019 | 2018 | 2017 | 2016 | 2015 | 2014 | 2013 | 2012

 


MIÐASALA Á HAMMONDHÁTÍÐ 2023


Aldurstakmark á tónleika fimmtudags, föstudag og laugardags er 18 ár.

Hvað kostar miðinn?
Heildarpassi á Hammondhátíð 2023 kostar kr. 14.900. Hann veitir þér aðgang að öllum tónleikum hátíðarinnar, fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag.

Einnig er hægt að kaupa miða á staka tónleika:

Fimmtudagur: 5.900.-
Föstudagur: 5.900.-
Laugardagur: 5.900.-
Sunnudagur: 4.900.-

Hvar kaupi ég miða?
Miðasala á Hammondhátíð 2023 er á tix.is. Einnig verður hún við inngang á tónleikadögum.

ÞAÐ SEM ÞÚ ÞARFT AÐ VITA:

Aldurstakmark á tónleika fimmtudags, föstudag og laugardags er 18 ár.

Ef ég vil kaupa miða á tvo eða þrjá viðburði Hammondhátíðar?
Því miður býður tix.is ekki upp á að kaupa á tvo eða þrjá viðburði í einu. Ætlir þú því t.d. að kaupa miða á tvo viðburði, þarftu að kaupa á þá í sitthvorri pöntuninni.

Er hægt að fá miðann endurgreiddan?
Nei, miðar fást ekki endurgreiddir.

Hvernig nálgast ég miðann?
Bæði er hægt að fá miðann sendan heim í pósti eða prenta hann út að pöntun lokinni.

 

Á tónleikadögum verður hægt að nálgast armbönd (hammbönd) í Bakkabúð milli 15:00 og 17:00. Þið mætið með staðfestingu á miðakaupum og fáið hammbönd í staðinn. Það er sannkallað win-win!

Það er þjóðráð að næla sér í bönd að deginum til því það minnkar biðröðina við innganginn á tónleikadag.

 
 

Hafa samband