HAMMONDHÁTÍÐ 2006
Í litlu þorpi á Austurlandi
var mikið um dýrðir á Hammondhátíð sem var haldinn á
Djúpavogi þann 20.-23. apríl 2006.
Hátíðin var haldin til
að heiðra og kynna fyrir tónlistaraðdáendum Hammondorgelið
sem úrsmiðurinn Hammond töfraði úr huga sínum til að geta
gert fátækum söfnuðum kleift að syngja við orgelundirleik.
Hver heimsviðburðurinn
af fætur öðrum leit dagsins ljós á hátíðinni og geta
aðstandendur hennar, Tónlistarfélag Djúpavogs og heimamenn
allir verið stoltir af að hafa hrint af stað þessari
framkvæmd, en hugmyndina að henni og langstærstan heiður af
framkvæmd hátíðarinnar á Svavar Sigurðsson.
Fyrsta kvöldið sáu
heimamenn á Djúpavogi um að bjóða gestum upp á afar
fjölbreytta dagskrá sem samanstóð af djass, blús, klassík,
rokki og frumsömdu efni, þar sem síðast en ekki síst voru
flutt nokkur lög eftir “BB Prince” sem er listamannsnafn
sveitarstjórans á Djúpavogi, Björns Hafþórs Guðmundssonar.
Fram komu fyrir utan
aldursforsetann; Bj. Hafþór á gítar, Vordís á þverflautu,
Silvia söngur, Helga söngur, Helgi gítar, Jón Einar gítar,
Þorleifur bassi, Arnar Jón trommur, Kjartan bassi, Bjartur
trommur, Ægir gítar, Guðmundur bassi, Andre gítar, Aron
saxófón og svo Svavar og Jóhann Atli, sem léku listir sínar
á orgelið. Þarna vantaði ekki spilagleðina en hún var að
öðrum ólöstuðum, líklega mest hjá Andre Sandö, 10 ára gömlum
gítarleikara sem tók blús af bestu gerð við mikinn fögnuð
tónleikagesta.
Á föstudagskvöldinu lék
orgeltríóið B-3 listir sínar á Hótel Framtíð við frábærar
undirtektir gesta. Agnar Már Magnússon töfraði fram jass af
bestu gerð á orgelið og naut stuðnings félaga sinn Eric
Qvick á trommur og Ásgeirs Ásgeirssonar á gítar. Mjög góð
stemming var í salnum og sást glöggt, hve góð áhrif lifandi
tónlist getur haft á viðstadda, þar sem allir viðstaddir
voru e.t.v. ekki einlægir jass-geggjarar við komuna, en
kunnu svo sannarlega að meta framlag þeirra félaga.
Laugardagurinn byrjaði á
tónleikum í Djúpavogskirkju með tenórnum Bergþóri Pálssyni
og Hammondspilarans Davíð Þórs Jónssonar, sem lét sér ekki
nægja að leika einungis á Hammondinn, heldur tók öll
hljóðfærin í kirkjunni til kostanna. Þeir fengu svo til liðs
við sig Kvennakór Hornafjarðar í lokanúmerið eftir að hafa
fengið salinn til að syngja af hjartans lyst í nokkrum lögum
á undan. Þvílíkir listamenn !!!
Davíð þór Jónsson fór svo
hamförum á Hammondið um kvöldið á Hótel Framtíð ásamt
“Landsliðinu” en í hópinn komust í þetta sinn engir aðrir en
Birgir Baldursson á trommur, Þorleifur Guðjónsson á bassa,
Sigurður “centár” Sigurðsson á munnhörpu og raddbönd,
Björgvin Gíslason á gítar og síðast en ekki síst Halldór
“mr. Blues” Bragason á gítar en hann studdi hátíðina með
ráðum og dáð allt frá því að upphafsmaðurinn Svavar
Sigurðsson viðraði hugmyndina að hátíðinni fyrir rúmu ári.
Salurinn var svo sannarlega með á nótunum og fagnaði þeim
félögum gífurlega og mátti glöggt sjá, hve vel
tónlistarmennirnir sjálfir nutu stundarinnar. Glæsilegir
tónleikar !!!!
Lokaviðburður
hátíðarinnar sem fram fór í Djúpavogskirkju, hófst á því að
Davíð þór lék nokkur af Goldberg tilbrigðum Bachs og bætti
svo einu tilbrigði við eftir sjálfan sig en þar dugðu engir
tíu fingur til og bættist því við tunga og nef. Í kirkjunni
voru tvö Hammond, annað þeirra frá 1948 í eigu Davíðs og svo
orgelið sem var í eigu Karls heitins Sighvatssonar. Davíð
kallaði því upp Svavar Sigurðsson og eftir nokkrar
klassískar hugleiðingar brugðu þeir sér til Afríku og enduðu
svo á syrpu af íslenskum slögurum.
Tónlistarfélag
Djúpavogs vill þakka eftirtöldum aðilum ómetanlegan
stuðning:
Menningarráði Austurlands,
Salar Islandica, Hótel Framtíð, Djúpavogskirkju,
Djúpavogshreppi, Aðalflutningum, Sparisjóði Hornafjarðar og
nágrennis, Vísi hf. og Flugfélagi Íslands.
Einnig er öllum þeim,
sem sóttu hátíðina þakkað framlag þeirra og einstaklega góð
viðbrögð við öllum atburðum, sem boðið var upp á þessa
menningardaga á Djúpavogi.
Á þessari stundu er
engu lofað með framhaldið, en forsvarsmenn hátíðarinnar eru
sannfærðir um að orðspor hennar hefur spurst út og telja
næsta víst að yrði sambærileg hátíð haldin að ári, myndu enn
fleiri nýta sér þau tækifæri, sem í boði yrðu.
Djúpavogi
25. apríl 2006;
Stjórn
Tónlistarfélags Djúpavogs
|